Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Til lukku !
Til lukku með stelpuna Sigga ( og Ásbjörn) Voðalega vaxa þessi börn nú hratt og við alltaf eins. kv Guðný Sig
Guðný Sig (Óskráður), mið. 6. júní 2007
hæ heija
Hæ Sigga Ég kíki við og við inn á síðuna þína og finnst alltaf gaman að lesa um það sem þú ert að fást við í skólanum. Til hamingju með glæsilegu stúdínuna þína hana Elínu Ásbjarnardóttur. Kveðja Elín Guð.
Elín Guðmundsdóttir (Óskráður), sun. 3. júní 2007
Kveðja frá Hafnarfirði
Sæl Sigga, ég les bloggið þitt alltaf öðru hverju og hef alltaf jafn gaman að því. Frábært að fylgjast með vinnunni þinni, kv. Guðborg
Guðborg (Óskráður), mán. 30. apr. 2007
Guðný Sig
Jahérna þú ert að verða heimsfræg allavega í Hendes Verden. Slltaf jafn gama að kíkja á síðuna þína ( þó soldið sé síðan ég kvittaði ) Gangi þér áfram sem allra best og hafðu það gott í páskafríinu. kv Guðný Sig
Guðný Sigurðardóttir (Óskráður), fim. 5. apr. 2007
En lille hilsen....
Hej Sigga Var lige inde og se dine fine blog. Der er mange gode billeder af alt hvad du har lavet, og af alle de oplevelser du har set i de sidste mange måneder. Håber alt er vel på skolen, og ser frem til og møde dig igen snart. Du er jo snart så god til dansk, så håber ikke du har problemer med at læse min hilsen. Hilsen Jacob
Jacob Jørgensen (Óskráður), sun. 18. mars 2007
Aðeins umhandboltann
Blessuð og langt er síðan ég kíkti inná síðuna þína. en alltaf gaman að fylgjast með þér. það hefði nú mátt fræða þig á einu í sambandi við handboltann að einn skólabróðir þinn (Tómas Erling Lindberg) á nú einn af strákunum í danska landsliðinu. hann er númer 24 og heitir Hans Óttar Lindberg. vonandi ertu að fara að fá vorið til þín ( allavega styttist í það) hér er milt veður í dag - rigning en þokkalegasta veður um 8 stiga hiti. Hlakka til að lesa meira frá þér og gangi þér áfram sem best. kv Guðný Sig
Guðný Sigurðardóttir (Óskráður), sun. 18. feb. 2007
Frábært!
Hæ Sigga, það er langt síðan ég hef litið til þín, en rosalega er gaman að lesa skrifin þín og sjá allar myndirnar, það er greinilegt, að þú hefur ekki setið auðum höndum. Hafðu það sem allra best og gangi þér vel áfram, kv.Guðborg
Guðborg Þórðardóttir (Óskráður), mán. 15. jan. 2007
alltaf gaman að fylgjast með þér
Já það er ekki leiðinlegt að fylgjast með skrifum þínum. þú ert engri lík og maður verður líklega að kaupa hendes verden þegar það kemur út með afrakstri þínum. Hafðu það sem best og góða ferð heim á Ísalandið. kv Guðný Sig
Guðný Sig (Óskráður), þri. 5. des. 2006
Guðný Sig
Sæl Sigga ég verð nú að kvitta svona af og til 8það VAR nú siður ef maður kíkTI í heimsóknir víst) Gaman að fylgjast með. Heyrðu þar sem ég er ekki góð í landafræði í DK segðu mér þá eitt ?? ertu nálægt Viborg ?? ég sá að þú fórst á glens þar nefninlega. Nei sko strákarnir hennar Sigrúnar systur minnar búa í Viborg var bara að spá hvar landfræðilega þú værir ?? Hafðu það sem best heillin og "hvað heitir flokkurinn ???? " (var ansi gott lag og góður tími. kv. Guðný Sig
Guðný Sig (Óskráður), mán. 13. nóv. 2006
margret@laekjarskoli.is Magga
Sæl Sigga mín, mikið er gaman að sjá ....hvor du har det hyggeligt... i Danmark... Olla sendi mér linkinn og ég fylgist spennt með, svona sem dönsku-aðdáandi. Hilsen fra mig, Magga
Margrét Þórisdóttir (Óskráður), fös. 10. nóv. 2006
ágústa frænka :)
Hæ sigga frænka:) gaman að sjá hvað þú skemmtir þér vel þarna úti, væri til að koma í heimsókn eitthverntíma ;),, en ég sé þig vonandi um jólin og áramót :) sjaumst bara:)
ágústa harrýsdóttir (Óskráður), sun. 5. nóv. 2006
Kveðja frá Húsavík
Heil og sæl mín kæra. Ég get ekki trassað lengur að kvitta fyir mig. Það hefur verið gaman að fylgjast með þér hér á síðunni. Ég samhryggist ykkur vegna fráfalls Perlu. Klúbbur í gærkvöldi hjá Huldu. Alltaf vantar hugmyndir um jólaföndur, en við reynum án þín þetta árið, en erum þess fullvissar að hugmyndakassinn verði úttroðinn að ári liðnu. Við væntum t.d. fata- og munasýningar, kannski strax í jan.´07? Við hlökkum til að sjá þig, höldum í vonina að þú verðir heima a.m.k. fram í miðjan jan. Hafðu það sem allra best. Kveðja, Helga og co.
Helga Kristinsdóttir (Óskráður), mið. 1. nóv. 2006
Kveðja frá vinkonu
Hæ Sigga mín, gaman að fylgjast með þér greinilegt að það er gaman og nóg að gera hjá þér.Hafðu það sem allra best ...þín fermingarsystir á ská Svana jónsd
Svana Jónsdóttir (Óskráður), þri. 31. okt. 2006
Innlit frá Selfossi
Sæl Sigga. Ég verð nú bara að kvitta fyrir innlitið. þó ég hafi nú kíkt áður. Og þar sem þú varst svo elskuleg við mig´(þegar ég, ung og saklaus stúlka var í Lúx um árið) að skrifa mér "almennileg" bréf, þá má ég nú til með að láta þig vita að ég kíki á þig hér og hef gaman af. Mér finnst þú engu lík að drífa þig út í þetta nám. ( Vantar að fá svona kjark og dugnað seldan á flöskum)En hafðu það sem allra allra best, Kv Guðný Sig
Guðný Sig (Óskráður), sun. 29. okt. 2006
Kveðja frá Hafnarfirði
Hæ Sigga! Mér þykir mjog gaman að lesa bloggið þitt, liggur við, að ég sé pínulítið öfundsjúk! Ég er nú stundum að nota hugmyndir, sem ég fékk á Skals í sumar, hafðu það sem best, kv.Guðborg
Guðborg (Óskráður), mán. 23. okt. 2006
Sæl Sigga
Sæl Sigga, frábært að lesa bloggið þitt. Ef satt skal segja þá vissi ég lítið hvað blogg var áður en Íris flutti til Ítalíu. En talandi um tækninga og hversu frábær hún er!!! Ég hef einmitt verið að bera saman mína Ítalíudvöl og Írisar nú. Sendu mér endilega skype fangið þitt og við hringjum í þig úr saumaklúbbnum á miðvikudaginn í næstu viku. Eigum við að segja að við hringjum í þig kl. 20,30 að íslenskum tíma, er það nokkuð of seint fyrir þig? Hlakka til að heyra í þér, kv. Soffía
Soffía Gísladóttir (Óskráður), fim. 21. sept. 2006
Hýri Hafnarfjörður
Má til með að kvitta fyrir heimsóknina á bloggsíðuna þína. Bið að heilsa þér og hafðu það sem allra best hjá frændum vorum Dönum eða eins og skrifað var í minningarbækurnar í "denn" lifðu í lukku en ekki í krukku. Bið að heilsa Kim Larsen ef þú hittir hann ;-) Venlig hilsen Anna G.
Anna Gunnarsdóttir (Óskráður), mán. 18. sept. 2006
Sæl Sigga!
Sæl og blessuð. Varð að kvitta fyrir mig, kíkti á síðuna eftir að hafa fengið slóðina hjá þínum ekta manni,hvern ég hitti einmitt í flugvél á leið til Reykjavíkur. Erum að fara að halda klúbb hjá Soffíu fljótlega og söknum þín auðvitað. En vona að lífið sé dásemd í Danmörku og þú hafir það gott. Kveðja frá Akureyri Þura
Þura (Óskráður), fös. 8. sept. 2006
Kveðja úr Skálabrekku 11
Sæl Sigga mín. Var að lesa bloggið þitt og hafði gaman af.Gott að sjá að gengur vel hjá þér.Það er allt gott hjá mér er farin að vinna aftur og allt gengur sinn vanagang.Bið fyrir kveðju til Önnu Birnu og vona að þið hafið það áfram gott í Danaveldi. Kær kveðja Hulda.
Hulda Jónsdóttir (Óskráður), fim. 7. sept. 2006
Sælar
Nafna þín hérna af Víkinni. Fékk þessa slóð hjá Brynhildi og ákvað að líta við. Gaman að geta fylgst með þér í útlöndunum og hvernig gengur hjá þér. Hlakka til að lesa meira, kveðja Sigga Hauks.
Sigríður Hauksdóttir (Óskráður), sun. 3. sept. 2006
Óskráð
Sæl og blessuð! Var loksins að komast inn á þessa skemmtilegu síðu þína, það er greinilega ekki leiðinlegt hjá þér? Ég vildi vera fluga á vegg í kristilegu andaktinni á morgnanna, þetta er sannkallaður stúlknaskóli af gamla taginu, (jómfrúarskóli). Sendi þér tölvupóst um helgina og segi þér af okkur. Saknaðar kveðja, Maja
María Kristjánsdóttir (Óskráður), fös. 1. sept. 2006
Til hamingju!
Sæl og blessuð! Til hamingju með afmæli þó seint sé - Tek undir með Brynhildi - ég hefði líka getað lánað þér sangbog på dansk! Það er aldeilis fjör hjá þér - kveikir bara í heilu vélunum! Kannski ættum við að fara að nota þessa aðferð við tölvukerfið og Mentor! Kv. Björg E.S. Bestu kveðjur til Önnu Birnu!
Björg Sigurðar (Óskráður), mán. 28. ágú. 2006
Til hamingju:)
Blessuð og sæl. Til hamingju með daginn í gær:) Gaman að sjá að allt gengur vel og ekki slegið slöku við. Ég hefði getað lánað þér Folkehöjskolens sangbog áður en þú fórst. Bestu kveðjur. Brynhildur Þ.
Brynhildur Þ. (Óskráður), lau. 26. ágú. 2006
Bogga frænka
Sæl og blessuð og til hamingju með daginn. Gaman að heyra að allt gengur vel og vonandi fer saumakennarinn að átta sig á því að hún þarf að sinna ísl. nemunum fljótt og vel ha ha segi nú bara svona. kv Bogga
Sigurborg (Óskráður), fim. 24. ágú. 2006
Ragnheiður
Hæ mamma... Nú er ég komin í sama land og þú... Gott að heyra að þú hefur það gott... Við heyrumst fljótlega! Knús
Ragnheiður (Óskráður), mið. 23. ágú. 2006
Um bloggið
Sigga í Skals
Myndaalbúm
Tenglar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar